
Grunnskóli Borgarfjarðar
Fyrstu nemendur komu í nýbyggðan skóla á Kleppjárnsreykjum 13. nóvember 1961.
Við Kleppjárnsreykjaskóla var síðar útibúi komið á fót á Hvanneyri. Það varð að sjálfstæðum skóla 1975 er hlaut nafnið Andakílsskóli. Vorið 2005 voru skólarnir sameinaðir í einn skóla sem nefndur var Grunnskóli Borgarfjarðarsveitar.
Nú hefur skólinn verið nefndur að nýju, og heitir Grunnskóli Borgarfjarðar.
Heimilisfang skólans er:
Grunnskóli Borgarfjarðar
311 Borgarnes
Starfsstöðvarnar eru tvær og auðkenndar þannig:
Grunnskóli Borgarfjarðar Kleppjárnsreykjum 311 Borgarnes og
Grunnskóli Borgarfjarðar Hvanneyri 311 Borgarnes
Skólastjóri og aðstoðarskólastjóri eru á Kleppjárnsreykjum og deildarstjóri á Hvanneyri.
Skólastjóri hefur fasta viðveru á Hvanneyri fyrirhádegi á þriðjudögum og eftir hádegi á fimmtudögum.
Skólastjóri er Guðlaugur Óskarsson s. 4351171 og 8615971
Aðstoðarskólastjóri er Þórunn Reykdal s. 4351173
Deildarstjóri er Ástríður Einarsdóttir s. 4370009
Ný heimasíða verður opnuð formlega í ráðhúsinu kl. 16 á miðvikudag 22. nóvember um leið og ný heimasíða Borgarbyggðar og er slóðin: www.gbf.is sem er skammstöfunin sótt í nafn skólans.
24. október
Nýr vefur
Nýr vefur Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar er í vinnslu. Vinsamlegast sýnið biðlund.
11. september
Réttir
Næstkomandi miðvikudag, 13. september ætlum við í réttir. Við förum í Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal og munum leggja af stað með rútu klukkan 8:30. Það er afar mikilvægt að allir mæti tímanlega þennan dag svo við komumst sem fyrst af stað. Þeir sem ætla með foreldrum sínum í réttirnar þurfa að láta vita svo ekki verði beðið eftir þeim. Við fáum réttarkaffi á staðnum, en verðum komin aftur hingað í skólann um klukkan 12 og borðum kjötsúpu í hádeginu.
Stígvél og regnföt eru alveg nauðsynleg í réttunum og mælum við einnig með húfum, vettlingum og ullarpeysum.
Kveðja
Starfsfólk Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar
Hvanneyri
18. ágúst
Innkaupalistar
Hér má nálgast innkaupalista fyrir skólaárið 2006-2007:
Hvanneyrardeild:
1.-2. bekkur
3.-4. bekkur
Kleppjárnsreykjadeild:
Yngsta stig
Miðstig
Elsta stig
16. ágúst
Skólasetning Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar
Kæru nemendur, foreldrar og samstarfsmenn!
Það er tilhlökkunarefni að framundan er skólastarf, samstarf sem byggir á löngun til að fræða og fræðast, þroskast í samstarfi sem er grunnur að öðru meira. Þeir sem hafa ráðið sig til starfa við Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar eru einhuga hvað varðar áhuga þeirra til að láta gott af sér leiða.
Skólasetning verður í Reykholtskirkju kl. 14, miðvikudaginn 23. ágúst. Foreldrum og nemendum gefst kostur á að hitta kennara að lokinni skólasetningu í kirkjunni.
Kennsla hefst samkv. stundaskrá fimmtudaginn 24. ágúst.
Stefnt er að því að opna skólasel á Hvanneyri eigi síðar en mánudaginn 28. ágúst.
Nú eru allir þeir sem fá þessa tilkynningu beðnir að láta upplýsingarnar berast þar sem fram á síðasta dag er nýtt fólk að flytjast til okkar og það lendir oft í erfiðleikum að læra á nýtt umhverfi.
Rétt er að benda á að við miðum við að birta áfram fréttir á heimasíðunum sem enn eru: http://www.andakill.is/ og http://kleppjarnsreykir.ismennt.is/ , en unnið er að einni nýrri heimasíðu sem þá mun m.a. finnast á heimasíðu Borgarbyggðar.
Innkaupalistar eru væntanlegir á heimasíður skólans fyrir helgi.
Kleppjárnsreykjum, 15. ágúst 2006,
með ósk um ánægjulegt samstarf
og góðan árangur í vetur.
Guðlaugur Óskarsson
skólastjóri
Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar
1. júní
Vorhátíð að Kleppjárnsreykjum
Vorhátíð Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar verður haldin að Kleppjárnsreykjum á morgunn, 2. júní.
Skóli verður með eðlilegum hætti fram að hádegi en þá verður haldið uppeftir. Hátíðin hefst klukkan 13:00 og lýkur klukkan 16:00. Skólaakstur verður báðar leiðir en við hvetjum alla foreldra til þess að koma með börnum sínum.
Dagskráin verður eftirfarandi:
Grunnskóli Borgarfjarðarsveitar
Útihátíð og söngvarakeppni
Vorhátíð
Föstudaginn 2. júní 2006 kl. 13 – 16
verður haldin hátíð á hlaðinu
á Kleppjárnsreykjum og í íþróttahúsinu.
Á dagskrá verður m.a.
Söngvarakeppni
Stuttmyndahátíð
Myndasýningar
Kynnt úrslit í lestrarkeppni 4. og 5. bekkjar
Lýst kjöri íþróttamanns skólans 2005 – 2006
Knattspyrnuleikur milli nefnda og nemenda
Hljómsveitir
Hoppukastali
Víkingaspil
Fjölbreytt leiktæki fyrir unga sem aldna
Blak
Andlitsmálun
Grillveisla
Allir velkomnir yngri sem eldri
26. maí
Vorferð
Vorferðalagið tókst vel þrátt fyrir heldur óblíða vorveðráttu. Við hófum ferðalagið á Byggðasafninu að Görðum á Akranesi þar sem farið var með okkur í 2 hópum um safnasvæðið. Þar sáum við ýmsa merkilega hluti bæði gamla og nýrri.
Eftir skoðunarferð um safnið fengum við, sökum nístingskulda, húsaskjól í Brekkubæjarskóla á Akranesi þar sem skólayfirvöld höfðu fulla samúð með okkur ferðalöngunum sem vorum langt að komin og veðurbarin. Við borðuðum nesti í Brekkubæjarskóla og fengum svo að skoða skólann. Eftir matinn báru sig allir mun betur. Það var því hópur hraustra barna sem aldrei höfðu heyrt minnst á kulda og vetrarhörkur sem strunsuðu niður á Langasand og létu hafgoluna sem vind um eyrun þjóta. Margir voru fljótt komnir á sólarströnd í huganum og byggðu sandkastala og óðu í sjónum. Aðrir héldu sig í kuldagöllunum og grömsuðu í sandinum eftir forvitnilegum lífverum.
Eftir fjöruferðina var ekki um annað að ræða en að ferja misblauta nemendur heim á Hvanneyri þar sem var snædd skúffukaka í ferðalok.
Grænfánahátíð - Skógarhátíð
Þriðjudaginn 30. maí munum við taka á móti Grænfánanum í þriðja sinn í grunnskólanum á Hvanneyri. Við erum ákaflega stolt og ánægð með þann árangur skólans.
Við munum draga fánann að húni við skólann við hátíðlega athöfn kl 13.00 og eigum von á mörgum góðum gestum, m.a. foreldrum og eldri borgurum úr nágrenni skólans.
Í skólanum verður sýning á nemendaverkefnum á sama tíma.
Upplýsingar um grænfánann er að finna á grænfánaveggnum í skólanum og hér á heimasíðunni undir hnappnum stefnan. Einnig á heimasíðu Landverndar.
Að athöfninni lokinni munum við ganga út í Skjólbeltin þar sem nemendur lesa upp frumsamin ljóð, syngja sumarlög og fá gesti með sér í leiki.
Allir eru beðnir um að hafa með sér kaffi á brúsa, og teppi. Nemendur hafa verið duglegir að baka fyrir hátíðina og hlakka til að bjóða upp á eigin veisluföng á sameiginlegu veisluborði.
Vinsamlegast athugið að þrátt fyrir að sumarið sé komið er vissara að vera vel búinn þar sem við verðum mest utandyra.
17. maí
Vefurinn endurheimtur
 |
Jæja þá er vefur skólans snúinn aftur, búinn að liggja undir feld síðustu 2 mánuði eða svo. Ástæðan er ítrekuð bilun í tölvu vefstjóra sem ekki fékkst botn í fyrr en á allra síðustu dögum. Bilanasagan er löng en ekki ástæða til að rekja hana frekar hér. Þeir sem hafa áhuga á henni sem slíkri er bent á að hitta vefstjóra sem er alltaf boðinn og búinn að tjá sig um þessar hrakfarir. En nú er okkur hins vegar ekkert að vanbúnaði að fara að uppfræða foreldra og aðra velunnara skólans um það sem að baki er í skólastarfinu og ekki síst um það sem framundan er.
Eiríksstaðir
Föstudaginn 19. maí fara allir nemendur í 4. og 5. bekk í heimsókn að Eiríksstöðum í Dölum. Ferðin tengist námsefni þeirra í vetur um Leif heppna. Farið verður frá Kleppjárnsreykjum kl. 9 og Hvanneyri kl. 9:30. Heimkoma er áætluð um Kleppjárnsreyki að Hvanneyri og komið þangað u.þ.b. kl. 14:30.
1. bekkur í sund
Sama dag, föstudaginn 19. maí kemur 1. bekkur frá Hvanneyri í aukatíma í sundi (tvöfaldan tíma) að Kleppjárnsreykjum. Þetta verður endurtekið eftir helgina, á mánudag og miðvikudag, og lýkur þar með sundkennslu á þessu vori. Þessir nemendur þurfa því að vera með sundfötin með sér í skólanum þessa daga.
Vorferð
Þriðjudaginn 23. maí verður farin vorferð með alla nemendur úr Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar, á Akranes. Farið verður í safnahúsin að Görðum, nesti snætt í skógræktinni og farið í fjöru. Foreldrar, sem hug hafa á að koma með þurfa að skrá sig í ferðina sem fyrst til að unnt sé að fá rútu er tekur allan hópinn. Skráning fer fram hjá umsjónarkennurum og deildarstjóra á Hvanneyri í síma 4370009.
Söngvarakeppnin
Föstudaginn 24. maí verður forkeppni söngvarakeppninnar haldin að Kleppjárnsreykjum. Þátttökurétt eiga nemendur 4. - 10. bekkjar.
Grænfána- og vorhátíð
Þriðjudaginn 30 maí ætlum við að halda hátíð í skóginum. Fyrst munum við taka á móti grænfánanum í þriðja sinn í skólanum, en halda síðan í skjólbeltin með teppi, kakó og kaffi á brúsa og nesti. Þar munu nemendur lesa úr ljóðum, syngja sumarlög og ef veður leyfir verður farið í leiki eða þrautir. Við bjóðum foreldrum og velunnurum skólans að taka þátt í hátíðinni. Einnig bjóðum við eldri borgurum að taka þátt í hátíðinni með okkur. Brot af verkefnum nemenda í vetur verður til sýnis í skólanum þennan dag.
Sameiginleg útihátíð
Föstudaginn 2. júní, síðasta kennsludag vorsins, er fyrirhuguð útihátíð beggja deilda og verður hún haldin á Kleppjárnsreykjum.
Skólaslit
Fimmtudaginn 8. júní verða skólaslit Grunnskóla Borgarfjarðarsveitar kl. 14 að Kleppjárnsreykjum
Að baki
Ýmislegt hefur á daga okkar drifið síðan vefurinn fór í páskafrí.
Við höfum verið að gróðursetja plöntur hjá Eddu í Landbúnaðarháskólanum. Sumarblóm sem nemendur hafa verið eða eiga eftir að taka með sér heim.
Árshátíð var haldin með pomp og prakt í apríl. Þar sýndi 1. bekkur atriði úr ávaxtakörfunni, 2. og 3. bekkur sýndu Latabæ og 4. og 5. bekkur Emil í Kattholti. Auk þess var sýnd bíómyndin Fólkið í blokkinni sem var gerð af nemendum og umsjónarkennara 4. og 5. bekkjar. Árshátíðin þótti takast með eindæmum vel og voru nemendur og starfsfólk stolt að degi loknum.
Í síðustu viku komu Anna Guðrún prófessor og Björn aðstoðarrektor Landbúnaðarháskólans færandi hendi með ýmiskonar lífverur úr fjöruferð sem þau fóru í með nemendur Landbúnaðarháskólans. Við notuðum tækifærið og skoðuðum dýrin og gróðurinn vandlega, sérstaklega 2. og 3. bekkur sem er um þessar mundir að fræðast um fjöruna og hafið. Við þökkum þessa kærkomnu sendingu.
6. mars
Skólasel opnar aftur á morgun
Á morgun, þann 7. mars opnar skólaselið á ný. Á síðustu stundu tókst að ráða tvær góðar starfskonur til þess að hafa umsjón með skólaselinu.
Birta Sigurðardóttir mun standa vaktina á mánudögum en Harpa Gunnarsdóttir verður á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Við bjóðum þær velkomnar til starfa.
Hljómskálakvintettinn
Miðvikudaginn 8. mars kemur Hljómskálakvintettinn í heimsókn til okkar. Heimsóknin er liður í verkefninu tónlist fyrir alla. Kvintettinn mun kynna fyrir okkur málmblásturshljóðfæri og leika nokkur lög.
2. mars
Afganistan
 |
Eins og fram hefur komið hér á vefnum höfum við hér í skólanum verið að safna fötum og selja jólakort til þess að hjálpa fátækum börnum í Afganistan. Fyrir jól fengum við í heimsókn til okkur friðargæsluliða, sem sýndi okkur myndir og sagði okkur frá lífinu þar. Í Afganistan búa börnin við mikla fátækt og er ríkið númer 5 í röðinni á lista yfir fátækustu ríki heims.
Fyrir jólin hófum við svo söfnun á hlífðarfatnaði handa börnunum og seldum jólakort. Friðargæsluliðar fóru svo til Afganistan eftir áramót með fatnaðinn og ágóðann af kortasölunni.
Í síðustu viku fengum við svo aftur heimsókn og voru þar friðargæsluliðar á ferðinni sem fyrr. Að þessu sinni kom einn karlmaður og ein kona. Þau komu með nýjar myndir og ýmsa muni frá Afganistan. Þau sögðu okkur frá því hvað var gert við það sem við söfnuðum. Fatnaðurinn var gefinn í lítið fjallaþorp þar sem búa 5 mjög fátækar flóttafjölskyldur sem eru að reyna koma undir sig fótunum á nýjum slóðum. Þar er nú um 25 gráðu frost á nóttunni og því ættu fötin að koma sér vel. Þorpshöfðingjanum var falið að úthluta fötunum til þeirra sem mest þurftu á þeim að halda.
Peningunum var varið til kaupa á námsbókum fyrir kvennaskóla í Ghor- héraði. Konur í Afganistan hafa ekki fengið að ganga í skóla fyrr en eftir aldamótin síðustu eða um 2001. Þær kunna því hvorki að lesa né skrifa. Þrátt fyrir að nú hafi lögum verið breytt, ganga karlmenn fyrir með öll námsgögn sem eru af skornum skammti í landinu. Keyptar voru um 1200 bækur, stærðfræðibækur, lestrarbækur á þeirra tungumáli og enskukennslubækur, einnig töluvert magn af skriffærum. Í kvennaskólanum eru um 400 nemendur, stúlkur og konur á aldrinum 4 - 30 ára. Forstöðukonan sem tók við bókunum var afar þakklát og sendi nemendum okkar eftirfarandi þakkarbréf:
Ghor hérað - Afganistan
Skrifstofa kvennamála
Til Vinalands okkar, Íslands
Þann 16. febrúar 2006 var skrifstofu kvennamála í Ghor héraði afhentir pennar, stílabækur og skólabækur frá börnum sem sinna mannúðarstörfum í vinalandi okkar, Íslandi. Þeirra vegna eru allar sem stunda nám hér á skrifstofu kvennamála mjög ánægðar og þakka fyrir sig og samstarfið. Við munum aldrei gleyma aðstoð íslensku barnanna og vonum að þau muni njóta velfarnaðar að eilífu og að við getum styrkt vináttusamband okkar um ókomin ár.
Sosan Yazdani
Framkvæmdarstýra skrifstofu kvennamála
Við teljum að verkefnið hafi tekist mjög vel og vakið börn til umhugsunar um misjafnan aðbúnað barna í heiminum. Þau hafa upplifað það að pínulítill skóli á Íslandi getur haft mjög mikil áhrif á líf fólks sem þarf á hjálp að halda, í fjarlægum löndum. Við teljum að þegar börnin fá að taka þátt í öllu ferlinu, þ.e. kynnast lífi fólksins fyrst, safna svo fyrir það og að lokum fá að vita og jafnvel sjá hvert hjálpin fór, öðlist þau meiri samkennd og ábyrgð. Einnig upplifa þau sig frekar sem þátttakendur í lífi fólksins. Vonandi verður framhald á þessu samstarfi. Við færum friðargæsluliðunum bestu þakkir fyrir þeirra þátt í verkefninu og óeigingjarnt starf sitt að mannúðarmálum.
26. febrúar
Dansssýning
Undanfarnar vikur hafa nemendur skólans verið í danskennslu hjá Ásrúnu. Á fimmtudaginn mun kennslunni ljúka með danssýningu sem fram fer í íþróttahöllinni á Hvanneyri á fimmtudaginn klukkan 15:00. Allir velkomnir.
Öskudagur
Á öskudag verður kennsla í skólanum með eðlilegum hætti fyrstu 2 tímana. Eftir það förum við fylktu liði um Hvanneyri og heimsækjum fyrirtæki staðarins. Munum við gleðja starfsfólk með söng. Við ljúkum svo skóladeginum með stuttu grímuballi. Að sjálfsögðu mega allir koma í grímubúningum.
Skólasel
Árangurslaust hefur verið reynt að fá starfsmann í skólaselið. Stefán var ráðinn til 1. mars en hefur ákveðið að vinna út þessa viku. Ef ekkert breytist fram að því verður selinu lokað mánudaginn 6. mars um óákveðinn tíma, eða þar til úr rætist með starfmann. Við þökkum Stefáni kærlega fyrir það metnaðarfulla starf sem hann hefur unnið með börnunum í vetur.
15. febrúar
Ávaxtadagur
 |
Í dag settu nemendur 2. og 3. bekkjar á stofn ávaxtaverslun. Nemendur komu með ávexti að heiman sem þeir seldu í versluninni, samnemendum sínum og starfsfólki. Gjaldmiðillinn var kennslupeningar sem eru eftirlíking af alvöru peningum. Auk þess að fá hollan aukabita milli máltíða fengu nemendur heilmikla þjálfun í meðferð peninga. Fram fóru vangaveltur um verðlagningu. Þeim þótti til dæmis ástæða til þess að hafa blæjuber og mangó dýrara en epli og banana, þar sem fyrrnefndu ávextirnir voru framandi fyrir mörgum sem voru spenntir að smakka. Þetta er jú allt spurning um framboð og eftirspurn. Einnig veltu nemendur því fyrir sér hvort þau ættu að hugsa um hag verslunarinnar og leyfa öllum að kaupa eins og þeir vilja eða hvort ætti að skammta þannig að allir fái að smakka allt. Einnig reyndist þessi verslunarrekstur góð þjálfun í samlagningu og frádrætti og margir klóruðu sér í hausnum yfir því hvað þeir ættu að fá til baka og hvort það nægði fyrir einu vínberi í viðbót. Hér eru myndir frá ávaxtadeginum.
Við minnum á foreldraviðtöl á morgunn, fimmtudag, vetrarfrí á föstudag og starfsdag á mánudag.
26. janúar
Myndir
og fréttabréf
Nú
eru myndir frá skólastarfinu í desember
komnar á vefinn. Einnig nýtt fréttabréf.
11.
janúar
Fernur eiga framhaldslíf
Í tilefni af endurvinnsludögum í næstu
viku óskum við eftir að nemendur komi með
2-3 tómar mjólkur- eða ávaxtasafafernum
með sér í skólann á mánudag.
Að auki þyrftu allir að koma með 1 skál
sem tekur ca. 1 -2 lítra til þess að nota sem
mót. Ef einhverjir búa svo vel að eiga frosin
bláber sem þeir mega missa, rósablöð,
eða hvaðeina sem nota má til þess að
blanda í pappír við endurvinnslu þá
er allt slíkt vel þegið.
10.
janúar 2006
Gleðilegt nýtt ár
 |
Nú
er skólastarf komið af stað eftir gott jólafrí.
Við ætlum að byrja árið með fögrum
fyrirheitum um holla hreyfingu, og umhverfisvernd.
Danskennsla
Dansnámskeið verður á vegum skólans
líkt og undanfarin ár. Kennt verður á
skólatíma í íþróttahöllinni
á Hvanneyri. Dansskóli Jóns Péturs
og Köru mun sjá um snúninginn. Námskeiðið
hefst miðvikudaginn 18. janúar og verður 2 svar
í viku í 5 skipti.
Endurvinnsla og umgengni
Í næstu viku ætlum við að hafa Endurvinnsludaga.
Þá munum við brjóta upp hefðbundið
skólastarf, búa til starfshópa þar
sem við blöndum saman nemendum úr öllum
árgöngum. Unnið verður með endurvinnslu
á pappír á nokkrum mismunandi starfsstöðvum.
Samhliða þessu verkefni ætlum við að
gera átak í bættri umgengni og framkomu
innan skólans.
Afganistan
Það er sérstaklega ánægjulegt
að segja frá því að söfnunarátak
okkar fyrir skólabörn í Afganistan fyrir
jólin gekk vonum framar. Ágóði af jólakortasölu
var um 80.000 krónur og er hann nú kominn áleiðis
til Afganistan. Ágóðanum verður varið
í kaup á skólavörum handa nemendum
í fjallahéröðum í grennd við
Kabúl. Einnig sendum við tvær stórar
töskur fullar af vettlingum, húfum og sokkum. Við
bíðum spennt eftir frekari fréttum frá
Afganistan og eigum von á myndum frá afhendingu
gjafana.
Þrettándagleði
Þrettándagleði
var haldin hér með pomp og pragt síðast
liðinn föstudag. Við buðum nemendum úr
leikskólanum í heimsókn og tóku
þeir þátt í skemmtuninni. Allir voru
með álfahatta sem föndraðir voru í
tilefni dagsins. Vegna veðurs var ekki hægt að
fara út í skjólbelti og kveikja varðeld
eins og til stóð. Við kveiktum þess í
stað á kertum inni í skóla og dönsuðum
hringdans. Við sungum einnig áramóta- og þrettándasöngva
og nemendur leikskólans sungu fyrir okkur jólalag.
Eldri
fréttir |